Kæru Tíbet Spaniel aðdáendur og eigendur. Verið velkomin á nýja heimasíðu Tíbet Spaniel deildar HRFÍ. Um leið og ég býð ykkur velkomin á síðuna, vil ég vekja athygli ykkar á því að síðan er í vinnslu! Ætlunin er að hafa hér myndir og upplýsingar um ræktendur og got og fleira skemmtielgt sem tengist tegundinni okkar. Mig langar að biðja ykkur sem hafið efni sem þið viljið koma á framfæri hér á síðunni að senda mér póst á helgasmelga@gmail.com. Myndir eru alltaf vel þegnar. Einnig megið þið láta mig vita ef þið viljið vera á síðunni okkar undir Ræktendur. Sendið mér þá póst með ykkar nafni, nafn á ræktun (ef eitthvað) og netfang eða annað sem þið viljið láta fylgja með. Sama gildir ef þið eruð með, eða hafið nýlega verið með got væri gaman að setja það hingað inn, smá upplýsingar um foreldra og myndir. Einnig er í vinnslu síða með íslenskum meisturum, svo endilega sendið mér myndir og upplýsingar um meistaran ykkar svo ég geti birt hér á síðunni!
Bestu kveðjur, F. hönd stjórnar, Helga, vefsíðustjóri Næsta ganga Tíbet Spaniel deildarinnar verður sunnudaginn 15. apríl næstkomandi hjá Geithálsi. Við ætlum að hittast á planinu við Olís hjá Rauðavatni og keyra saman þaðan kl 13:00. (Ef einhver lendir í vandræðum með að rata verður hægt að ná í mig í síma 6947415). Það verður lausaganga í þetta sinn, svo hundarnir fá að hlaupa og leika sér :) Vonumst til að sjá sem flesta!
Kv. stjórn Tíbet Spaniel deildarinnar. |
VelkominVelkomin á heimasíðu Tíbet Spanieldeildarinnar. Hér finnurðu allskyns fróðleik og fréttir af tegundinni. Færslur
December 2023
Flokkar
All
|